top of page
ChatGPT Image Apr 3, 2025, 12_28_07 PM.png

Markþjálfahjartað er....

....hópur markþjálfa sem vinna að því að koma markþjálfun inn í menntakerfið á Íslandi.

​

  • Markþjálfahjartað vill sjá að nemendur, foreldrar og allt starfsfólk skóla geti haft greiðan aðgang að markþjálfun.

  • Markþjálfun er hlutlaus og uppbyggilegur vettvangur til þess að þekkja og nýta betur eigin styrkleika og tækifæri.

  • Markþjálfun hjálpar einstaklingum og hópum að kortleggja eigin væntingar og gerir framtíðarsýn hvers og eins að veruleika.

  • Markþjálfar vinna að því að virkja sköpunargleði og aðstoða marksækjendur við hrinda í framkvæmd raunhæfum og árangursríkum úrræðum.

  • Markþjálfun er langtímasamband sérþjálfaðs markþjálfa og marksækjanda sem byggir á gagnkvæmu trausti, faglegri nálgun og öflugum stuðningi við markmið.

  • Með markþjálfun er hægt að bæta samskiptahæfni og þannig stuðla að bættu andrúmslofti innan skólans.

  • Hópmarkþjálfun getur nýst teymum, vinnuhópum og öðrum hópum sem vinna að sameiginlegum viðfangsefnum og markmiðum.

  • Markþjálfun er verkfæri sem getur verið gagnlegt til að efla andlegan þroska einstaklinga og jafnframt áhrifarík leið til sjálfstyrkingar þeirra.

     

Við viljum nýta markþjálfun til að efla framúrskarandi skólaumhverfi og vinna með nemendum/foreldrum/starfsfólki skóla við að finna og nota styrkleika sína bæði í námi og daglegu lífi.

12417694_470544873130808_3411778626247217009_n.jpg

Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir

​​

Screenshot 2018-12-18 15.28.24.png
Screen Shot 2021-01-14 at 12.23.51.png
ACC.jfif
  • Facebook Social Icon
transparent_pcc_badge_cleaned.png
master-certified-coach-mcc.png
bottom of page